FÍA sakar Icelandair um að grafa undan kjaraviðræðum

Félag íslenskra atvinnuflugmanna lítur kaup Icelandair á Fly Play Europe alvarlegum augum. FÍA á í kjaradeilu við Icelandair um þessar mundir.Greint var frá því í gær að Icelandair hefði gengið frá kaupum á 49% hlut í Fly Play Europe, sem á dótturfélag á Möltu með maltneskt flugrekstrarleyfi. Kaupin eru háð því að samkomulag náist við maltnesk flugmálayfirvöld um áframhaldandi notkun flugrekstrarleyfis FPE.Í tilkynningu frá FÍA segir að í viðræðum hafi flugfélagið lagt þunga áherslu á heimild til að leigja inn erlendar flugvélar ásamt áhöfnum, sem er gjarnan kallað blautleiga, og aukinn sveigjanleika í reglum um hvíldartíma og lengd fluga.„Á sama tíma hefur félagið tryggt sér flugrekstrarleyfi utan íslensks vinnumarkaðsumhverfis. Í því samhengi er nærtækasta merking orðsins „sveigjanleiki“
FÍA sakar Icelandair um að grafa undan kjaraviðræðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd