Lægsta verðið oftast í Prís

Lægsta verð á matvöru er í Prís, samkvæmt úttekt Verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands og um 2.000 krónum munar á verslunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. MATARKARFAN UM ÞÚSUND KRÓNUM DÝRARI Í BÓNUS Úttektin var gerð dagana 10. til 14. ágúst og verð í Bónus, Krónunni, Nettó og Prís borin saman. Verðsamanburður var gerður á 25 algengum neysluvörum. Lægsta verðið var oftast að finna í Prís og það hæsta í Nettó. Krónan var með hæsta verðið á einni vöru, Emmessís litapinnum.Stöku vörur voru umtalsvert ódýrari í Prís en öðrum verslunum. Til að mynda var heilt Myllu-heimilisbrauð (770 grömm) 230 krónum ódýrara en í Bónus og brauðostur 26% var 89 krónum ódýrari í Prís en í Bónus.Karfan kostaði 17.433 krónur í Prís en 18.396 krónur í Bónus, 18.767 krónur í Krónunni og 19.522 krónur
Lægsta verðið oftast í Prís

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd