Vilja leggja niður skólaakstur úr Suðurhlíðum í Hlíðaskóla

Meirihlutinn í Reykjavíkurborg leggur til að frá og með upphafi skólaársins 2026-2027 verði ekki boðið upp á skólaakstur úr Suðurhlíðunum í Hlíðaskóla. Tillaga þess efnis var samþykkt á fundi skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar með fjórum atkvæðum gegn tveimur.Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins kusu gegn tillögunni og fulltrúi Miðflokks sat hjá. Í bókun þeirra segir að þó að vegalengdin sé innan fjarlægðarviðmiða sem gilda um reglubundinn skólaakstur þurfi að taka tillit til ýmissa þátta.„Fyrir börn og sérstaklega þau yngstu er um talsverða vegalengd að ræða, allt að 1,4 kílómetra, sem áætlað er að taki börn sem búa lengst frá skólanum hátt í hálftíma að labba.“Grunnskólastarf hefst eftir þrjá daga og er stuttur fyrirvarinn gagnrýndur í bókuninni. Talið
Vilja leggja niður skólaakstur úr Suðurhlíðum í Hlíðaskóla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd