Tveir drengir eru alvarlega særðir í bænum Fagersta í Svíþjóð þar sem sverðaárás var framin í framhaldsskóla. Nemendur nemendur lýsa í viðtali við SVT því hvernig árásarmaðurinn birtist snögglega og stakk vin þeirra í handlegginn.„Við fórum út og sjáum að það var blóð um allan handlegginn og hann segir: „Hringið í lögregluna.“ Svo var hringt í lögregluna og við hlupum á brot því við vorum hrædd,“ segir Abdulrahem Salmo.Þetta er fyrsta vika annarinnar í skólanum og nemendur eru í áfalli. „Ég er sorgmæddur. Mér finnst ég ekki öruggur í skólanum mínum, sem er líka sorglegt,“ segir Muhidin Hassan. BLAÐAMANNAFUNDI FRESTAÐ Búið er að opna hjálparmiðstöð í Fagersta, í bænum búa um tólf þúsund manns. Sænska lögreglan hafði boðað til blaðamannafundar klukkan þrjú að íslenskum tíma en honum var f