„Löggæslan er í fáránlegri stöðu“

Dregið hefur verið úr löggæslu á Þórshöfn eftir að lögreglustöðinni var lokað vegna myglu fyrir tæpu ári. Lítið hefur gerst í húsnæðismálum og stöðugildum lögreglumanna hefur fækkað.„Við höfum ekki orðið vör við neinar framkvæmdir þar eða séð neinar ákvarðanir teknar um hvort eigi að gera við húsnæðið eða leggja það af. Sveitarfélagið getur til dæmis aðstoðað lögregluembættið við að finna húsnæði. Við erum að eignast húsnæði á næstunni sem myndi henta undir lögreglustöð sem dæmi. Við viljum bara fá samtal um þetta, að láta ekki þessa þjónustu drabbast svona niður,“ segir Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður byggðarráðs Langanesbyggðar. ALLT AÐ TVEGGJA KLUKKUSTUNDA VIÐBRAGÐSTÍMI Lögreglan hefur aðstöðu í skrifstofuhúsnæði á vegum sveitarfélagsins þar sem hvorki eru fangaklefar né yfirhe
„Löggæslan er í fáránlegri stöðu“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd