„Ísraelsmenn eiga að hætta þessu tafarlaust“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að íslensk stjórnvöld taki undir með ríkjum sem segja útboð ísraelskra stjórnvalda óásættanlegt. Bretland, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Holland, Kanada og Noregur gáfu í gær út yfirlýsingu þar sem útboð ísraelskra stjórnvalda er sagt óásættanlegt. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem áformin mæta andstöðu í alþjóðasamfélaginu.„Ísraelsmenn eiga að hætta þessu tafarlaust. Það er alveg makalaust að fylgjast með því hvernig Ísraelsmenn eru að haga sér, náttúrulega hörmulega á Gaza, en ekki síður á Vesturbakkanum,“ segir Þorgerður.Þorgerður segir að með framgangi sínum sé Ísraelsher markvisst að koma í veg fyrir að reynt sé að tryggja frið á svæðinu. Sömuleiðis sé herinn að vinna gegn tveggja ríkja lausn sem að mati stjórnvalda gæti verið varan
„Ísraelsmenn eiga að hætta þessu tafarlaust“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd