Samþykkt var á aukafundi skóla- og frístundaráðs að fella niður skólaakstur úr Suðurhlíðum í Hlíðaskóla. Skólaráð skólans harmar ákvörðunina og leggur áherslu á að tryggt sé að gönguleiðir úr Suðurhlíðum séu öruggar allt árið um kring. Breytingin gerir ráð fyrir að snjómokstri sé alltaf lokið fyrir klukkan átta á morgnana.