Kristín Þórðardóttir hefur verið skipuð í nýtt embætti sýslumanns Íslands og tekur við stöðunni í dag. Sjö sóttu um embættið sem var auglýst til umsóknar í mars. Þetta kemur fram í tilkynningu á veg Stjórnarráðsins.Kristín hefur verið sýslumaður á Suðurlandi síðustu níu ár og auk þess settur sýslumaður í Vestmannaeyjum, síðast frá 2023. Hún hefur jafnframt verið formaður Sýslumannaráðs frá 2018.Kristín lauk kandidatsprófi frá lagadeild Háskóla Íslands 2006 og á síðasta ári lauk hún stjórnunarnámi frá Said Business School við Oxford-háskóla í Bretlandi. Hún hefur einnig lagt stund á stjórnunarnám í endurmenntun Háskóla Íslands og Opna háskólanum.Kristín segir heiður að fá að gegna ebmættinu.„Ég er þakklát fyrir það traust sem mér og mínum störfum hingað til er sýnt með skipun minni. Unnin h