Sverðaárás í framhaldsskóla í Svíþjóð

Maður réðst með sverði á fólk í framhaldsskóla í Fagersta í Svíþjóð fyrr í dag. Nokkrir eru særðir og árásarmaðurinn er í haldi lögreglu.„Árásarmaður vopnaður sverði gekk inn í Brinellskolan og særði nokkra,“ segir í yfirlýsingu frá sveitarfélaginu Fagersta. Ekki hefur komið fram hversu mörg eru særð.Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn og Aftonbladet greindi frá því að lögreglumenn hefðu skotið mann vopnaðan sverði í fótinn.Fréttin verður uppfærð.
Sverðaárás í framhaldsskóla í Svíþjóð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd