Þrír erlendir sérfræðingar mátu mögulegar aðgerðir til að ná líki Lúðvíks upp. Í maí fékk lögreglustjórinn á Suðurnesjum minnisblað frá verkfræðistofunni COWI sem lagði mat á aðstæður á vettvangi í Grindavík.Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að í minnisblaðinu komi fram að ef ákveðið væri að fara í slíka leit þyrfti að áfangaskipta framkvæmdinni.„Á sama tíma er áréttað í minnisblaðinu að það sé á ábyrgð þess aðila sem ber ábyrgð á leitinni að framkvæma sérstakt áhættumat á því hvort ráðast skuli í slíkar aðgerðir og þá með hvaða skilyrðum.“Áhættumatið er í höndum lögreglu og er meðal annars gert með aðstoð erlendu sérfræðinganna. Svæðið við sprunguna er á framkvæmdaáætlun í haust. Margrét vonar að ákvörðun liggi fyrir sem fyrst og að unnið sé hratt en með fagm