Vinnuveitandi brotaþola í Reykholtsmálinu gaf skýrslu á fimmta degi aðalmeðferðar. Hann segir grunsemdir sínar hafa vaknað strax á mánudegi eftir að ofbeldið átti sér stað þegar brotaþoli hafi ekki mætt til vinnu.Sex eru ákærð í málinu fyrir að svipta sextugan mann frelsi sínu í Reykholti í Bláskógabyggð í apríl 2024, frá föstudegi fram á mánudag, beita hann alvarlegu ofbeldi og hafa af honum fé. Maðurinn er frá Palestínu en með maltneskt ríkisfang.„Okkar samskipti voru góð. Hann var fyrirmyndarstarfsmaður, mætti alltaf tímanlega í vinnu og sinnti sínum störfum vel,“ sagði vinnuveitandinn sem sagðist hafa fengið smáskilaboð úr númeri brotaþola þegar hann mætti ekki til vinnu á mánudeginum.Áður hefur verið fjallað um fyrir dómi að Andri Már Mortensen Birgisson, Ingunn Rut Sigurðardóttir og