Ísraelsk stjórnvöld hafa opnað útboð fyrir nýja risastóra ólöglega landtökubyggð á Vesturbakkanum. Þessi áform eru fordæmd í sameiginlegri yfirlýsingu frá sjö vestrænum ríkjum.Bretland, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Holland, Kanada og Noregur gáfu í gær út yfirlýsingu þar sem útboð ísraelskra stjórnvalda er sagt óásættanlegt. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem áformin mæta andstöðu í alþjóðasamfélaginu. SAMÞYKKT Í ÁGÚST Í FYRRA Í ágúst í fyrra samþykktu stjórnvöld í Ísrael að hrinda af stað áformum um nýja ógnarstóra landtökubyggð sem gengur undir nafninu E1-verkefnið. Alls eiga að vera þar um 3.400 íbúðir á svæði sem liggur við Austur-Jerúsalem.Landtökubyggðin, sem er ólögleg eins og allar slíkar byggðir samkvæmt alþjóðalögum, myndi því í raun aðskilja palestínska hluta Jerúsalem frá Vest