Hafa tryggt loftferðaréttindi á Filippseyjum

Íslensk stjórnvöld hafa samið við stjórnvöld á Filippseyjum um loftferðaréttindi. Fram að þessu hefur enginn loftferðasamningur verið í gildi milli ríkjanna. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Viðræðurnar fóru fram að frumkvæði Íslands.Samningurinn skapar lagalegan grundvöll fyrir flug milli Íslands og Filippseyja. Þar er meðal annars kveðið á um samstarf flugfélaga og farþega- og fraktflug.RÚV / Ragnar Visage
Hafa tryggt loftferðaréttindi á Filippseyjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd