Elsta manneskja í heimi, sem vitað er um, á 117 ára afmæli í dag. Hún er fædd á Englandi og er síðasti núlifandi þegn Játvarðar sjöunda Bretlandskonungs.Ethel Caterham fæddist 21. ágúst 1909 í enska þorpinu Shipton Bellinger í Hampshire-sýslu. Hún hefur gert margt um ævina, fór 18 ára til Indlands sem au pair og stofnaði leikskóla í Hong Kong þar sem hún bjó um tíma með eiginmanni sínum heitnum.Það hefur líka gengið á ýmsu í heiminum frá fæðingu hennar. Hún er fædd þremur árum áður en Titanic sökk og fjórum árum fyrir upphaf fyrri heimsstyrjaldarinnar.Caterham er líka síðasti núlifandi þegn Játvarðar sjöunda. Hann var konungur Bretlands 1901 til 1910 og var langaafi Elísabetar, sumsé langalangaafi Karls þriðja, núverandi konungs.Hún er líka fædd áður en Háskóli Íslands var stofnaður (1911)