Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar hefur samþykkt breytingar á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar, sem heimila meðal annars uppsetningu allt að þrjátíu metra hás masturs. „Ljóst er að Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð,“ segir í bókun meirihlutans.