Maður hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa mánudaginn 8. júní 2026 á pósthúsinu við Síðumúla í Reykjavík tekið á móti tæpum þrettán hundruð grömmum af kókaíni. Fíkniefnin hafði maðurinn í fórum sínum þegar lögreglan handtók hann síðar sama dag. Fíkniefnin voru falin í fjórum pottum sem bárust með póstsendingu til Íslands.