Helsta forsenda fyrir réttlætingu hvalveiða sé brostin

Forystumenn dýra- og umhverfisverndarsamtaka segja markað fyrir hvalkjöt vera brostinn og kalla eftir því að stjórnvöld stöðvi veiðarnar. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu forystumanna samtakanna.„Erfitt er að hugsa sér nöturlegri birtingarmynd tilgangsleysis þessara veiða en að stórhveli séu iðulega látin líða langvarandi og kvalafullan dauðdaga á sama tíma og kjötið safnast nú upp í frystigeymslum vegna skorts á kaupendum,“ segir í yfirlýsingunni.Þau segja reynsluna hafa sýnt að ómögulegt sé að tryggja skjótan og sársaukalausan dauðdaga hvala við veiðar. Vandinn liggi í veiðunum sjálfum og því regluverki sem heimili þær.„Lög sem eiga að verja dýr gegn óþarfa kvölum verða þýðingarlítil ef langdregið og kvalafullt dauðastríð uppfyllir þau, svo lengi sem allir fylgi verklagi.“
Helsta forsenda fyrir réttlætingu hvalveiða sé brostin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd