Fjölmiðlamaðurinn Kristján Kristjánsson hefur verið ráðinn sem einn af umsjónarmönnum Kastljóss. Hann gegndi því hlutverki í sex ár upp úr aldamótum og snýr því aftur eftir um tveggja áratuga fjarveru. Hann hefur störf 1. september.Kristján hefur starfað í fjölmiðlum i þrjá áratugi, síðast í tíu ár sem umsjónarmaður Sprengisands á Bylgjunni. Þar áður var hann yfirmaður samskipta hjá Landsbankanum, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar fyrstu mánuðina eftir hrun og forstöðumaður samskipta hjá FL Group.Á árunum 1986-2006 kom hann víða við á fjölmiðlum, var meðal annars blaðamaður á Viðskiptablaðinu. RÚNAR TIL LIÐS VIÐ SPEGILINN Þá hefur einnig verið gengið frá ráðningu fréttamanns í fréttaskýringaþáttinn Spegilinn. Rúnar Pálmason verður einn umsjónarmanna Spegilsins og hefur störf í byrju