Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann til fimmtán mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnasmygl. Hann tók á móti tveimur sendingum með samanlagt tæplega 1,3 kíló af kókaíni með 80 til 81 prósents styrkleika. Kókaínið var falið í tveimur pottum í hvorri sendingu. Maðurinn játaði sök fyrir dómi. Dómari taldi að maðurinn hefði hvorki átt efnin né skipulagt smyglið. Þess í stað hafi hann samþykkt að sækja kókaínsendingarnar á pósthús gegn greiðslu. Hann átti svo að afhenda öðrum manni sendingarnar. Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 9. júní og dregst það frá 15 mánaða fangelsisrefsingu.Dómurinn var kveðinn upp 10. ágúst en birtur í dag.Kókaín. Mynd úr safni.Pixabay / CC