Flugumferðarstjórar á Gardemoen og Flesland leggja niður störf

Samtök flugumferðarstjóra í Noregi eru komin í verkfall eftir að ekki náðist samkomulag hjá ríkissáttasemjara. Samtökin höfðu fyrir fram tilkynnt að tólf flugumferðarstjórar á Gardemoen og Flesland legðu niður störf í dag ef ekki tækist að semja. Ríkissáttasemjarinn Mats Wilhelm Ruland segir niðurstöðuna mikil vonbrigði þótt lítið hafa miðað í samkomulagsátt enda deilan flókin og einhver sú harðasta það sem af er ári. Hann vill ekki tjá sig efnislega um hvað viðsemjendum fór á milli enda eigi að ríkja trúnaður um það. Ríkisfyrirtækið Avinor, sem á og rekur flesta opinbera flugvelli í Noregi, hefur greint þær tafir og frestanir sem fylgja verkfallinu fyrstu fjóra dagana. Verði verkfallið til þess að skapa hættu getur ríkisstjórnin leitað til gerðardóms til að stöðva það.
Flugumferðarstjórar á Gardemoen og Flesland leggja niður störf

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd