Þrír sagðir hafa meiðst í snörpum jarðskjálfta í Andesfjöllum

Þrír meiddust lítillega þegar jarðskjálfti af stærðinni 6,7 reið yfir miðhluta Perú í gær að sögn yfirvalda.Konur á göng í Andesfjöllum.EPA / Paula BayarteÞau segja jafnframt að um það bil tuttugu byggingar hafi laskast, þar af sex skólar. Skjálftinn átti upptök sín á næstum hundrað kílómetra dýpi undir Andesfjöllum sem Jarðskjálftastofnun Perú segir ástæðu þess hve lítið tjónið varð.Fólk hafi þust út úr húsum enda hafi því verið talsvert brugðið. Perú er eitt þeirra landa sem stendur á Kyrrahafseldhringnum svokallaða þar sem um það bil 85 af hundraði jarðhræringa heimsins eiga upptök sín.
Þrír sagðir hafa meiðst í snörpum jarðskjálfta í Andesfjöllum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd