Lyfjameðferðinni var beitt eftir að krabbamein í kjálkabeini slöngunnar tók sig upp að nýju eftir aðgerð.Slangan er 23 ára, býr í Chester-dýragarðinum á norðvestanverðu Englandi, er fjórir og hálfur metri á lengd, nefnd eftir leikkonunni Jodie Foster og hefur að sögn náð fullum bata. Sífellt færist í aukana að dýr fái meðferð sem áður var aðeins ætluð mönnum og rafskautsmeðferðinni hefur áður verið beitt við lækningu skjaldbaka og eðla.Rafskautslyfjameðferðin felur í sér notkun krabbameinslyfsins bleómýcíns samhliða því að röð rafboða er send beint á æxlissvæðið; þessi boð gera frumur krabbameinsins tímabundið gegndræpari, sem auðveldar lyfinu að komast inn í þær.Dýralæknateymi garðsins skipulagði meðferðina á Jodie í samvinnu við krabbameinssérfræðinga háskólans í Liverpool, enda hafði sn