Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman í dag til annarrar óformlegrar atkvæðagreiðslu um stuðning við stækkandi hóp þeirra frambjóðenda sem sækjast eftir því að leiða samtökin.Fimm konur og þrír karlar keppast um að taka við stjórnartaumum Sameinuðu þjóðanna þegar síðara fimm ára kjörtímabili Antonios Guterres lýkur um áramót. Arftakans bíður ærið verkefni þar sem samtökin standa frammi fyrir fordæmalausum óstöðugleika á alþjóðasviðinu og miklum fjárhagsvanda.Öryggisráðið er valdamesta stofnun Sameinuðu þjóðanna og öll ríkin fimmtán sem þar sitja greiða atkvæði um umsækjendurna í leynilegri kosningu. Fulltrúar þeirra geta greitt atkvæði með frambjóðanda, gegn eða sagst enga skoðun hafa. TRYGGJA ÞARF STUÐNING NÍU RÍKJA OG FORÐAST NEITUNARVALD Frambjóðandi þarf að tryggja sér stuðning