Jessica Bowie er 35 ára bandarísk kona sem hefur verið ákærð fyrir brot á hryðjuverkalögum eftir að hún tjáði uppljóstrara alríkislögreglunnar að hún ætlaði sér að gera sprengjutilræði gegn aðsetri löggjafarþings og ríkisstjórnar New York-ríkis. Það er í borginni Albany, skammt frá landamærunum að Kanada. Samkvæmt dómsskjölum er Bowie ákærð fyrir tilraun til að veita tilteknum, erlendum hryðjuverkasamtökum stuðning. Hún hafi sagst í dulkóðuðum samskiptum við uppljóstrarann vilja drepa fjölda þingmanna, eyðileggja skjöl og granda eins miklu af byggingunum og unnt væri. Hugmynd hennar var að þykjast vera bílstjóri matarsendingarbíls og laumast þannig inn á svæðið og koma fyrir sprengju. ÆTLAÐI AÐ FLÝJA TIL SÝRLANDS Að því búnu ætlaði hún að flýja til Sýrlands og snúa aftur síðar til að ge