Boða samnorræna stefnu um samfélagsmiðlanotkun barna og ungmenna

Norðurlöndin hafa í hyggju að gefa út sameiginlega stefnu um samfélagmiðlanotkun barna og ungmenna. Þetta segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, en hún og kollegar hennar funduðu í Kaupmannahöfn í dag.Ráherrarnir fengu kynningu um áhrif samfélagsmiðla á geðheilsu og einbeitingu unglinga og Kristrún segir kláran vilji hjá hópnum til að sameinast um að því að sníða þessa tækni betur að ungu fólki.„Þetta er svolítið fín lína á milli þess að fara í einhvers konar ritskoðun eða hart bann, eða reyna að hafa áhrif á það, með hvaða hætti tæknin er hönnuð, að hún skapi ekki áráttu eða einbeitingarleysi.“Hún segir Norðurlöndin jafnan hafa staðið í fararbroddi þegar kemur að félagslegum málum.„Það er vilji hjá okkur til að gefa út sameiginlega stefnuyfirlýsingu um þetta. Og við munum vinna með
Boða samnorræna stefnu um samfélagsmiðlanotkun barna og ungmenna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd