Hlaupari sem hefur safnað áheitum upp á fjórar milljónir króna fyrir Píeta samtökin í Reykjavíkurmaraþoninu segist vilja gefa til baka eftir að hafa glímt við kvíða á yngri árum.Eiður Rafn Gunnarsson er einn þeirra sem ætla að reima á sig hlaupaskóna á laugardaginn og hlaupa sitt fyrsta maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu.Reykjavíkurmaraþonið er frábært tækifæri til að gefa til baka, segir hlaupari sem glímdi við kvíða á yngri árum og hefur nú safnað ríflega fjórum milljónum, og mest allra, fyrir Píeta samtökin.Hann er búinn að safna langmestu af öllum rúmlega 14.500 sem eru skráðir í hlaupið. Hann hefur safnað ríflega fjórum milljónum og 90 þúsundum króna fyrir Píeta samtökin.„Ég lenti í veikindum þegar ég var yngri, kvíðavandræðum, eins og margir, sérstaklega ungir drengir, gera,“ segir Eiðu