Skólabjöllu grunnskóla Grindavíkurbæjar verður hringt í næstu viku, í fyrsta sinn í tæplega þrjú ár. Skólastjóri leik- og grunnskóla í bænum segir undirbúning hafa gengið vel.Líf er óðum að færast í Grindavíkurbæ í skugga náttúruvár og eldsumbrota. Skólastarf hófst í leikskólanum Laut í síðustu viku – og börnin nutu útiverunnar í blíðskaparveðri í morgun.Á þriðjudag mæta svo 24 nemendur á skólasetningu grunnskólans og segir Guðlaug Erlendsdóttir, skólastjóri, allt til reiðu.„Það hefur gengið bara mjög vel að undirbúa. Það er svolítið krefjandi því þetta verður öðruvísi, ekki þetta hefðbundna sem maður kannast við.“ „NÝI SKÓLINN OG GAMLI SKÓLINN“ Sex kennarar sjá um kennslu og nemendahópnum verður skipt í þrennt: yngsta stig, miðstig og efsta stig.Kennararnir Gréta Dögg Hjálmarsdóttir og