Fjöldi íbúðarhúsa og barnaspítali var á meðal skotmarka Rússlandshers í loftárásum í nótt.Árásirnar vörðu klukkustundum saman og að minnsta kosti fimmtán voru drepnir.Árásirnar í nótt hæfðu meðal annars íbúðablokk í Solmianskyi-hverfi.Ungt barn lést eftir að hafa orðið undir rústum blokkarinnar. VAR HEIMA ÞEGAR ÁRÁSIRNAR HÓFUST Óskar Hallgrímsson, blaðamaður og ljósmyndari, er búsettur í Kyiv höfuðborg Úkraínu. Hann var heima að vinna þegar árásir Rússa hófust í gærkvöld.Hann segir að þegar viðvörunarbjöllur fóru að hljóma hafi hann flúið inn á baðherbergið á heimili sínu.„Maður veit að maður hefur bara nokkrar mínútur til að koma sér í skjól.“Hann sá þá í fréttum að tíu flaugar væru á leiðinni inn í úkraínska lofthelgi í einu.„Síðan kemur bara svakaleg bylgja hérna niður.“Óskar segir a