Samstæða Símans fær nýtt nafn

Hluthafar Símans hf. samþykktu í dag að breyta nafni samstæðunnar í Ásar hf. Með breyttu skipulagi færist fjarskipta- og miðlarekstur í nýtt dótturfélag sem heitir Síminn ehf.Í tilkynningu félagsins segir að síðustu mánuði hafi orðið umbreyting í rekstrinum en í desember var tilkynnt um kaup félagsins á Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands. Í síðasta mánuði var gengið frá kaupum á Greiðslumiðlun Íslands.Með breyttu skipulagi samstæðunnar sé fjarskipta- og miðlarekstur færður í nýtt dótturfélag sem mun heita Síminn ehf. Þá verði hlutverk móðurfélagsins enn að styðja við áframhaldandi vöxt og þróun.„Nafnabreytingin er stórt skref í enn stærra verkefni, en orðið vísar í áherslu okkar á agaðan vöxt í fleiri áttir sem hverfist ávallt um skýran miðpunkt í traustri og öruggri stafrænni þjónustu
Samstæða Símans fær nýtt nafn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd