Bandbrjálaður maður veittist að lögreglumönnum sem kallaðir voru til vegna veikinda. Er lögreglu bar að garði reyndist aðilinn vera í annarlegu ástandi og undir áhrifum fíkniefna. Hann veittist að og hrækti meðal annars á lögreglumenn á vettvangi. Þá fundust einnig fíkniefni á staðnum og er málið til rannsóknar.