Stofnandi Evergrande í lífstíðarfangelsi

Stofnandi kínverska fasteignarisans Evergrande var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi.Hui Ka Yan játaði sig sekan um fjárdrátt og mútugreiðslur - en fyrirtækið hafði tekið við fyrirframgreiðslum frá fasteignakaupendum sem voru svo nýttar við uppbyggingu annarra og óskyldra verkefna.Þetta varð til þess að við gjaldþrot fyrirtækisins voru hundruð fasteigna ókláraðar í landinu.Árið 2021 fór Evergrande, nánast á einni nóttu, frá því að vera eitt stærsta fasteignafélag Kína, metið á um 50 milljarða dala, yfir í að vera skuldsettasta félag heims. Það hafði víðtæk áhrif á efnahagslíf Kína.Hui Ka Yan, stofnandi Evergrande.AP/Xinhua / Uncredited
Stofnandi Evergrande í lífstíðarfangelsi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd