Umferðarslys við Vaðlaheiðargöng

Ökumaður mótorhjóls slasaðist þegar bíll og mótorhjól rákust saman á Þjóðvegi 1, sunnanmegin við Vaðlaheiðargöngin, Akureyrarmegin á fjórða tímanum í dag. Hann er ekki í lífshættu.Þetta staðfestir varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.Lögregla og sjúkraflutningamenn voru kölluð til en hafa nú lokið aðgerðum á vettvangi. Búið er að opna fyrir umferð á ný.Fréttin hefur verið uppfærð.
Umferðarslys við Vaðlaheiðargöng

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd