Fjórði dagur aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu svokallaða hófst með skýrslutöku af brotaþola í málinu. Maðurinn er 61 árs gamall Palestínumaður með maltneskt ríkisfang.Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manninum föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024.Maðurinn hefur áður gefið skýrslu fyrir dómi. Það getur gerst á fyrri stigum máls þegar óvíst er hvort hægt sé að kalla fólk til við aðalmeðferð.Nokkuð ósamræmi var á milli frásagnar brotaþola og þess sem aðrir ákærðu í málinu sögðu fyrir dómi. Hann sagði þátt margra hinna ákærðu mun stærri en þeir hafa lýst fyrir dómi. Þá var einnig nokkuð um ósamræmi á milli frásagnar brotaþola og þess sem fram hefur komið í gögnum málsins.Alls