Icelandair kaupir 49% hlut í Fly Play Europe

Icelandair hefur gengið frá kaupum á 49 prósenta hlut í Fly Play Europe Holdco, sem á dótturfélag á Möltu með maltneskt flugrekstrarleyfi.Kaupverðið nemur 686 þúsund bandaríkjadölum, eða 83,4 milljónum króna.Viðræður hófust í vor.Með kaupunum fær Icelandair aðgang að viðbótarflugrekstrarleyfi innan Evrópu, sem félagið segir auka sveigjanleika og skapa möguleika til hagræðingar í rekstri.Samhliða viðskiptunum hefur hluthafasamkomulag verið gert, samið um fjármögnun og möguleika Icelandair til að auka eignarhlut sinn í félaginu síðar. Viðskiptin eru meðal annars háð því að samkomulag náist við maltnesk flugmálayfirvöld um áframhaldandi notkun flugrekstrarleyfis FPE.Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir kaupin eiga að styrkja samkeppnishæfni félagsins og skapa ný tækifæri, meðal anna
Icelandair kaupir 49% hlut í Fly Play Europe

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd