Lögreglan í Svíþjóð hefur handtekið norskan mann sem er talinn tengjast hvarfi Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018. Maðurinn var þó ekki handtekinn vegna þessa máls heldur vegna gruns um umfangsmikil fíkniefnabrot.