Það var þétt dagskrá hjá forsetahjónunum í dag á öðrum degi opinberrar heimsóknar í Eistlandi. Halla Tómasdóttir forseti ávarpaði meðal annars eistneska þingið. Bæði forseti landsins og forsætisráðherra minntust á þátt Íslands í sjálfstæðisbaráttu Eista.Það var á þessum degi, 20. ágúst, árið 1991, sem Eistland lýsti yfir sjálfstæði á ný eftir fall Sovétríkjanna. Í ræðu sinni fyrr í dag þakkaði Kristen Michal, forsætisráðherra Eistlands, Íslendingum fyrir að hafa verið fyrstir þjóða til þess að viðurkenna nýfengið sjálfstæði.Forseti Íslands ávarpaði eistneska þingið í dag og ræddi meðal annars mikilvægi frelsis og lýðræðis. Forsetahjónin eru í opinberri heimsókn í Eistlandi og bæði forseti landsins og forsætisráðherra minntust á þátt Íslands í sjálfstæðisbaráttu Eista.„Við höfum ekki fetað