Bílslys við Vaðlaheiðargöng

Bíll og mótorhjól rákust saman á Þjóðvegi 1, rétt sunnan við munna Vaðlaheiðarganganna Akureyrarmegin á fjórða tímanum í dag.Lögregla og sjúkraflutningamenn eru á staðnum. Samkvæmt upplýsingum frá viðbragðsaðilum urðu einhver slys á fólki en þau veita ekki frekari upplýsingar að svo stöddu. Lögreglan stýrir umferð um veginn á meðan unnið er á vettvangi.
Bílslys við Vaðlaheiðargöng

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd