Menningarnótt verður haldin í Reykjavík á laugardag og búist er við fjölda gesta í miðborginni.Ókeypis skutlur verða í boði á vegum Reykjavíkurborgar og Strætó. Þær aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju frá klukkan 7 að morgni til klukkan 23:15. GESTIR HVATTIR TIL AÐ TAKA STRÆTÓ Í ár verður skutlunum einnig ekið um Njarðargötu frá klukkan 7 til 12, meðal annars til að auðvelda fólki að fylgjast með Reykjavíkurmaraþoninu. Þau sem koma akandi eru hvött til að leggja við Laugardalshöll og nýta skutluþjónustuna inn í miðborgina.Akstur Strætó verður með breyttu sniði vegna lokana í miðborginni og ferðum fjölgað á flestum leiðum yfir daginn. Upplýsingar um akstur Strætó á Menningarnótt má finna í biðskýlum Strætó á degi Menningarnætur og á straeto.is. STRÆTÓFERÐIR FRÁ SÓLFARINU Þeg