Deila íbúa í húsi á Kársnesi í Kópavogi rataði fyrir dómstóla í síðustu viku og ekki í fyrsta sinn. Það var í fjórða sinn sem nágrannakryturnar voru teknar fyrir hjá dómstólum landsins.Íbúana greindi á um það hvort þvottarými í kjallaranum væri sameign eða hvort það væri í raun séreign eins íbúa hússins. Sá hafði ráðist í framkvæmdir í þvottarýminu og nágrenni þess til að koma í veg fyrir að aðrir nýttu það. Hann sagðist vera eini eigandinn að þvottarýminu þrátt fyrir að hafa leyft öðrum afnot af því í 30 ár fram til 2019.Kjallarinn er í húsi sem reist var 1952 og skiptist þá í tvær íbúðir. Síðar var báðum íbúðum skipt upp í fleiri.Þegar íbúinn ákvað að koma í veg fyrir afnot annarra af þvottarýminu höfðaði nágranni hans mál fyrir dómstólum til að fá aðgang að því. Það gekk eftir því bæði