Það breytist nánast ekkert í íslenskri vinnumarkaðslöggjöf með inngöngu í Evrópusambandið, að mati Sonju Ýrar Þorbergsdóttur formanns BSRB, enda löggjöfin að miklu leyti innleidd í gegnum EES. Sonja á erfitt með að skilja hvers vegna fólk haldi að staða og réttindi verkafólks myndu versna til muna með inngöngu, en vill samt ekki fullyrða hvort hún muni batna.