Hnúfubakur stal senunni við Sólfarið

Hnúfubakur hefur synt í sjónum rétt við Sólfarið og Hörpu í dag og vakið talsverða eftirtekt.Katrín Georgsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu, segir að hvalir komi stundum svo nálægt landi, en það sé ekki algengt.Elding heldur dagbók yfir hvalina og þegar sérfræðingar fyrirtækisins bera saman myndir seinna í dag kemur í ljós hvort um góðkunningja sé að ræða. Sumir hvalir sjáist aftur og aftur frá hvalaskoðunarskipunum.Hvalurinn lék listir sínar í dag og virtist ekki láta athyglina á sig fá. Bragi Valgeirsson tökumaður fréttastofu náði þessum myndum um hádegisbil.
Hnúfubakur stal senunni við Sólfarið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd