Yfir 600 milljóna gjaldþrot þriggja tengdra veitingafyrirtækja

Engar eignir hafa fundist í þrotabúum þriggja nátengdra félaga í veitingarekstri. Gjaldþrotin nema í heild um 603 milljónum króna. Eitt tengt félag til viðbótar er enn í gjaldþrotameðferð og því gæti talan úr þessari þrotahrinu átt eftir að hækka frekar.Skiptum á tveimur búum er nú nýlokið og auglýsingar um það birtust í Lögbirtingablaðinu í dag.Þetta er annars vegar félagið Búsendi ehf., sem áður hét Grillhúsið ehf. og rak samnefnda veitingastaði. Kröfur í það bú námu tæpum 208 milljónum en upp í þær fékkst ekki neitt.Hitt félagið hét OL Restaurant & Sportbar ehf. og rak staðinn Sport og grill í Smáralind, auk þess sem rekstur veitingastaðarins TGI Fridays var færður inn í félagið eftir að fyrra rekstrarfélag hans varð gjaldþrota. Kröfur í bú OL Restaurant & Sportbar ehf. námu um 167 mill
Yfir 600 milljóna gjaldþrot þriggja tengdra veitingafyrirtækja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd