Útlit er fyrir að almenningssamgöngur á Suðurlandi verði skertar verulega. Vegagerðin ber við fjárskorti. FERÐ 73 MILLI REYKHOLTS OG SELFOSS LÖGÐ ALVEG NIÐUR Anton Kári Halldórsson, formaður stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, hefur miklar áhyggjur af þessum breytingum og gagnrýnir fækkun ferða á leið 51, milli Reykjavíkur og Selfoss - og leið 71, milli Hveragerðis og Þorlákshafnar - og að leið 73 milli Selfoss og Reykholts verði lögð alveg niður. Það skerði aðgengi íbúa að námi, vinnu og þjónustu.Á sama tíma og nýsamþykkt samgönguáætlun kveði á um að efla almenningssamgöngur til að bæta þjónustu sé Vegagerðinni gert að mæta 660 milljóna króna vanfjármögnun með því að skera niður í almenningssamgöngum á landsbyggðinni.„Þetta hefur náttúrulega bara þær afleiðingar að umferðin eyk