Fyrrverandi eiginkonu eins ákærða í Reykholtsmálinu var í dag gert að mæta fyrir dómstóla í eigin persónu í stað þess að gefa skýrslu í gegnum fjarfundarbúnað.Konan var byrjuð á skýrslu sinni í gegnum fjarfundarbúnað en stuttu eftir það heyrði saksóknari og dómari í ákærða í íbúð konunnar. Umræddur maður sem er ákærður er tengdafaðir Andra Más Mortensen Birgissonar og faðir Ingunnar Rutar Sigurðardóttur sem er einnig ákærð í málinu. Hún játaði sinn þátt í málinu í gær.Fimm karlar og ein kona, sem öll eru Íslendingar, eru ákærð fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán á heimili mannsins í Reykholti í Bláskógabyggð fyrir tveimur árum.Dómari sagði það ekki til umræðu hvort vitnisburðurinn fengi að halda áfram. Konan yrði að mæta í eigin p