Skiptum er lokið á tveimur félögum í eigu veitingamannanna Helga Magnúsar Hermannssonar og Jóhannesar Birgis Skúlasonar án þess að króna fengist upp í kröfur. Kröfur námu alls um 375 milljónum króna. Félögin ráku staðina TGI Fridays og Adesso í Smáralind og Grillhúsið. Annað félagið var enn skráð á fyrri eiganda þess þegar það varð gjaldþrota, enda höfðu Helgi og Jóhannes ekki greitt fyrir það.