Stofnandi kínverska fjárfestinga- og fasteignafélagsins Evergrande Group hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hui Ka Yan var um tíma auðugasti maður Asíu en fall Evergrande, sem var einn af hornsteinum kínverska hagkerfisins, hafði umfangsmikil áhrif á Kína og varð að eins konar táknmynd fyrir vandræði á fasteignamarkaði Kína.