Ný stjórn Orkuveitu Reykjavíkur var kosin á framhaldsaðalfundi fyrirtækisins í dag. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í borgarstjórn, var kosinn formaður stjórnar líkt og Hildur Björnsdóttir borgarstjóri boðaði þegar meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar var kynntur fyrr í sumar. Með Ara í stjórn sitja Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, sem verður varaformaður, Ásta Dís Óladóttir prófessor, Ragnar Baldvin Sæmundsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akranesi, Ragnheiður Björk Halldórsdóttir iðnaðarverkfræðingur og Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.Sigurður Guðmundsson verður áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar.Varamenn eru: Magnea Gná Jóhannsdóttir, Brynjar Níelsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Auður Hermannsdóttir, María Sigríður Guðjón