Bandaríkjaforseti hefur í þessari viku hótað að gera árásir á bandamenn í Óman og fyrirskipað að dregið skuli úr hlut Bandaríkjanna í heræfingum í Suður-Kóreu og kallað Kim Jong-un, einhvern harðsvíraðasta einræðisherra veraldar, vin sinn. Hann hafi aldrei sýnt sér annað en virðingu. Trump gaf í skyn að ákvörðunin um heræfingarnar væri vegna þess að stjórnvöld í Suður-Kóreu hefðu ekki stutt árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. ÓVINUR VINA SINNA OG VINUR ÓVINA Þetta bætist ofan á fjandskap við bandamenn, ítrekaðar yfirlýsingar um yfirráð á Grænlandi, hótanir við grannríkin Kanada, Mexíkó og Panama, skipbrot stefnu Trumps í Mið-Austurlöndum, árásargjarna tollastefnu og margt annað. Nú hótar Trump öllum ríkjum sem eigi í viðskiptum við Íran refsiaðgerðum sem eigi ekki sinn líka. Trump k