Fjöldi íbúðarhúsa og barnaspítali var á meðal skotmarka Rússlandshers í loftárásum í nótt. Árásirnar vörðu klukkustundum saman og að minnsta kosti fimmtán voru drepnir.„Við erum öll komin með nóg - komin með nóg af stríði,“ segir Larysa Bondaaruk. Hún býr í Kyiv og heimili hennar var eitt af skotmörkunum í nótt. Tveir íbúar í sama húsi voru drepnir.Vitali Klitschko, borgarstjóri Kyiv, segir að Rússlandsher hafi skemmt eða eyðilagt meira en fjögur þúsund byggingar í borginni frá því innrásin hófst.Klitschko segir í viðtali við BBC að áframhaldandi stuðningur vinaþjóða sé nauðsynlegur og að Úkraínumenn verði að standa áfram saman.„Pútín dreymir um að við gefumst upp en það mun aldrei gerast,“ segir Klitschko. Að minnsta kosti fimmtán voru drepnir og tugir særðir í árásunum sem hófust skömmu