Kjartan Hreinn Njálsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra. Síðustu sjö ár hefur Kjartan Hreinn starfað hjá embætti landlæknis sem aðstoðarmaður landlæknis. Þar áður var hann annar tveggja ritstjóra Fréttablaðsins. Kjartan Hreinn er með BA -gráðu í bókmenntafræði og býr í Hafnarfirði ásamt unnustu sinni og tveimur börnum.„Ég þekki vel til Kjartans sem starfaði náið með mér þegar ég gegndi embætti landlæknis. Í starfi sínu hjá embættinu til sjö ára hefur hann öðlast mikilvæga þekkingu á heilbrigðismálum, ekki síst gæðum og eftirliti, auk þekkingar á stjórnsýslu þessara mála. Hann verður góður liðsauki í ráðuneytinu og ég hlakka til samstarfsins við hann“ er haft eftur heilbrigðisráðherra í tilkynningu. Kjartan hefur störf 27. ágúst og tekur við starfi aðstoð